Joshua 15

1Hlutur sá, er kynkvísl Júda sona fékk eftir ættum þeirra, lá að landamærum Edóms, suður undir Síneyðimörk, syðst í landinu. 2Suðurtakmörkin að landi þeirra voru frá enda Saltasjós, frá víkinni, er snýr til suðurs, 3og lágu fyrir sunnan Sporðdrekaskarð og yfir til Sín og upp eftir fyrir sunnan Kades Barnea og yfir til Hesron, þaðan upp til Adar og því næst í boga til Karka. 4Þaðan lágu þau yfir til Asmón og alla leið til Egyptalandsár, og síðast lágu takmörkin til sjávar. Þetta skulu vera landamerki þeirra að sunnanverðu. 5Austurtakmörkin voru Saltisjór, allt til þess er Jórdan fellur í hann. Norðurmörkin lágu frá nyrstu vík vatnsins, þar sem Jórdan fellur í það. 6Þaðan lágu takmörkin upp til Bet Hogla og fram hjá Bet Araba að norðanverðu og þaðan upp til steins Bóhans, Rúbenssonar. 7Þá lágu takmörkin upp til Debír úr Akordal, þaðan í norður til Gilgal, sem liggur þar gegnt sem upp er gengið til Adúmmím, sem er sunnanvert við lækinn. Þaðan lágu takmörkin yfir til En-Semesvatns og þaðan alla leið að Rógel-lind. 8Þaðan lágu landamerkin upp til Hinnomssonardals, að Jebúsítaöxl sunnanverðri; þar heitir nú Jerúsalem. Þaðan lágu landamerkin upp á fjallstindinn, sem er beint í vestur frá Hinnomsdal og við norðurendann á Refaímdal. 9Frá fjallstindinum beygðust landamerkin til Neftóavatnslindar og lágu þaðan til borganna á Efronfjalli. Þaðan beygðust landamerkin til Baala; þar heitir nú Kirjat Jearím. 10Frá Baala lágu landamerkin í boga vestur til Seírfjalls og þaðan yfir að öxl Jearímfjalls norðanverðri, það er Kesalon; og þaðan ofan til Bet Semes og yfir til Timna. 11Þá lágu landamerkin norður til Ekron-axlar, þaðan beygðust þau til Síkrón og yfir til Baala-fjalls og alla leið til Jabneel, og síðast lágu takmörkin til sjávar. 12Vesturtakmörkunum réð hafið mikla alla leið. Þetta voru landamerki Júda sona hringinn í kring, eftir ættum þeirra. 13Kaleb Jefúnnesyni gaf hann hlut meðal Júda sona, eins og Drottinn hafði boðið Jósúa, sem sé borg Arba, föður Anaks; það er Hebron. 14Og Kaleb rak þaðan þrjá sonu Anaks: Sesaí, Ahíman og Talmaí, afkomendur Anaks. 15Þaðan fór hann móti Debír-búum, en Debír hét áður Kirjat Sefer. 16Kaleb sagði: ,,Hver sem leggur Kirjat Sefer undir sig og vinnur hana, honum skal ég gefa Aksa dóttur mína að konu.`` 17Þá vann Otníel Kenasson, bróðir Kalebs, borgina, og hann gaf honum Aksa dóttur sína að konu. 18Þegar hún skyldi heim fara með bónda sínum, eggjaði hún hann þess, að hann skyldi beiðast lands nokkurs af föður hennar. Steig hún þá niður af asnanum. Kaleb spurði hana þá: ,,Hvað viltu?`` 19Hún svaraði: ,,Gef mér gjöf nokkra, af því að þú hefir gefið mig til Suðurlandsins. Gef mér því vatnsbrunna.`` Gaf hann henni þá brunna hið efra og brunna hið neðra. 20Þetta er óðal kynkvíslar Júda sona, eftir ættum þeirra. 21Syðstu borgirnar í kynkvísl Júda sona, við landamæri Edóms, í Suðurlandinu voru: Kabseel, Eder, Jagúr, 22Kína, Dímóna, Adada, 23Kedes, Hasór og Jítnan, 24Síf, Telem, Bealót, 25Hasór Hadatta og Keríjót Hesron, það er Hasór; 26Amam, Sema, Mólada, 27Hasar Gadda, Hesmon, Bet Pelet, 28Hasar Súal, Beerseba og Bisjótja, 29Baala, Ijím, Esem, 30Eltólað, Kesíl, Horma, 31Siklag, Madmanna, Sansanna, 32Lebaót, Silhím, Aín og Rimmon, _ alls tuttugu og níu borgir og þorpin, er að liggja. 33Á láglendinu: Estaól, Sórea, Asna, 34Sanóa og En Ganním, Tappúa og Enam, 35Jarmút og Adúllam, Sókó, Aseka, 36Saaraím, Adítaím, Gedera og Gederótaím, _ fjórtán borgir og þorpin, er að liggja. 37Senan, Hadasa, Migdal Gað, 38Dílean, Mispe og Jokteel, 39Lakís, Boskat, Eglon, 40Kabbón, Lahmas, Kitlís 41og Gederót, Bet Dagón, Naama og Makeda, _ sextán borgir og þorpin, er að liggja. 42Líbna, Eter, Asan, 43Jifta, Asna, Nesíb, 44Kegíla, Aksíb og Maresa, _ níu borgir og þorpin, er að liggja. 45Ekron með smáborgum hennar og þorpum. 46Frá Ekron og vestur að hafi allt það, sem er á hlið við Asdód, og þorpin, er að liggja. 47Asdód með smáborgum hennar og þorpum, Gasa með smáborgum hennar og þorpum, allt til Egyptalandsár, en vesturtakmörkum réð hafið mikla. 48Í fjalllendinu: Samír, Jattír, Sókó, 49Danna, Kirjat Sanna, það er Debír; 50Anab, Estemó, Aním, 51Gósen, Hólon og Gíló, _ ellefu borgir og þorpin, er að liggja. 52Arab, Dúma, Esean, 53Janúm, Bet Tappúa, Afeka, 54Húmta, Kirjat Arba, það er Hebron; og Síór, _ níu borgir og þorpin, er að liggja. 55Maon, Karmel, Síf, Júta, 56Jesreel, Jokdeam, Sanóa, 57Kaín, Gíbea og Timna, _ tíu borgir og þorpin, er að liggja. 58Halhúl, Bet Súr, Gedór, 59Maarat, Bet Anót og Eltekón, _ sex borgir og þorpin er að liggja. 60Kirjat Baal, það er Kirjat Jearím; og Rabba, _ tvær borgir og þorpin, er að liggja. 61Í eyðimörkinni: Bet Araba, Middín, Sekaka, 62Nibsan, Saltborgin og Engedí, _ sex borgir og þorpin er að liggja. 63En Jebúsítana, sem bjuggu í Jerúsalem, gátu Júda synir ekki rekið burt. Fyrir því hafa Jebúsítar búið í Jerúsalem ásamt Júda sonum fram á þennan dag.
Copyright information for Icelandic